Þarna birtast á tjaldinu tveir bráðhuggulegir kúrekar. Gott og vel. Til í tuskið. Þess albúnir að lumbra á indíánum og þeysa yfir gresjurnar. En neinei. Þá eru þetta bara einhverjir hommar! Ójá. Bossahossandi, flennihýrir og öfugyggðir - og kindasmalar í ofanálag!
Já, það er ekki að undra að farið hafi um nokkra fjölskyldufeður sem fóru á síðdegissýningu til að eiga svona father-son moment með strákunum sínum á cowoy-mynd. Maður lifandi hvað það hlýtur að hafa verið neyðarlegt. Eflaust ófáir krísufundir með mæðrum eftir þá sýningu.
SvaraEyðaVel að merkja, þessa sögu hef ég heyrt úr fleiri en einni átt.