föstudagur, apríl 06, 2007

Framskein, jaðarmarktekt og frontal

Þessi færsla er sett inn fyrir Andra Fannar þar sem hann er eitthvað tæknifatlaður, hehehe. ;-)


Ágætu rottur

Það eru margir mánuðir síðan ég skrifaði eitthvað á síðuna (æji eitthvað skemmtilegt...deilur, fatlaði satan, karlamál lilju, friðsöm móðir í breiðholti).

Það eru e-veginn eins og það séu tíu ár (eða e-ð af þeim toga)...

-síðan við Vaka vorum blindfull heima að drekka rauðvín, hlutsta á Led Zeppelin og flott rok (Ok, það var Sher*l Cr*w, álfurinn setta hana á, ) og elda stolnum kjúklingi (úr partýi hjá nemenda mínum - annað mál, Vaka, mannstu eftir self-efficacy lagið sem ég samdi um álfinn minn þegar við lærðum fyrir vinnusálfræði?) Og ætli myndalegi HAGFRÆÐINGURINN sé enn með pýramida Maslows í rassgatinu? Þú og Austuríski Beckham geta þakkað mér fyrir að þið séuð saman þar sem ég sá um að eyðileggja alla sénsa hjá.

- síðan maður kom með "djöfull tók ég stóran frontal, ég geri þetta aldrei aftur" sögu á hverjum mánudegi til Magga Blö, sem ráðlagði manni alltaf að gera það sem maður svo gerði ekki (Það er enn lengra síðan maður hefur séð Blöndahlin á Blöndahlnum...)

- síðan maður heyrði Jón Grétar tjá ást sína á mentalískri sálfræði (fyrirsögnin "rúnk" styrkti jákvæða hjartsláttarHEGÐÚÚÚN hjá mér)

-Síðan við Sigga var í bolnum með engum brjóstarhaldara heima í tvo daga þangað til frontalinn hann kjartan eyðilagði það með því að segja henni það

-Síðan við Heiða María unnum saman í rannsókn í félagslegri og þáttagreindum runkið okkar í 2 vikur án þess að fá nokkurn skapaða hlut (við redduðum því með aðhvarfsgreiningarlíkani sem hafði skýrða dreifingu upp á fylgi framsóknar (5%) og þúsund samvirknibreytum) Og rifumst allan tímann...

-Síðan við Baldur ræddum um intentionality. (Og hittum Ölfu, brandarinn - Alfa, ertu ekki áreiðanleg , var jafn fyndinn í 10 skiptið, í alvöru - við verðum að hringja í allar Ölfur og spyrja að þessu).

-Síðan að Lilja var með gaurnum sem sat í hugleiðslu í Animu-herbergi (og var DJ í ónefndri stúlku sem var ekki í ónefndum brjóstarhaldara) og ætlaði að gerast draugasálfræðingur.

-Síðan maður heyrði ýmislegt af hæðinni fyrir ofan (helvítis barþjónninn af Rauða ljóninu, svo hitti maður kvikindið daginn eftir í lyftunni, brosandi.) og Amma kvartaði undan látum þegar við vorum þrjú að læra fyrir klínuna.

-Síðan Boggi talaði við fólk um alvöru peyja og lundaveiðar á 19,3 glasi - og ætlaði bjóða manni með sér (klikkaði aldrei).

-Síðan FATLAÐI SATAN var íbyggið skákforrit (í Dennettískum skilningi)...Og það var kattarhland í konfektkassa sem helltist yfir allt gólfið og kattaskítur í rúminu (í viðbjóðslegum skilningi)

-Síðan Binni bauð mér Malibu í kók á árshátíðinni...Og benti á 2 lítra kók flösku í kennslutíma.

-Síðan Guðfinna slökkti alltaf á Fatty til að setja Britney Spears á (hvað var það?)

-Síðan Helga var þunglynd í prófunum (klikkaði aldrei, alltaf í prófunum)

-Síðan "þú stekkur ekki á mig og kyssir mig núna, kisi" (greimó...)

-Síðan Kjartan Smári fékk snípatuttan gullkjól og kollu - og var meiri leoncie en leoncie sjálf - að syngja í þætti hjá Dr. Fífli. Síðan fundurinn var um heiðursgestinn á árshátíðinni (dorritt)

-Síðan hugtökin: Snjalli Mongolíti, rjómaterta, frontal, ÁLFURINN, rúnk, mong, S-Delta (hver man ekki eftir henni) HEGÐÚÚÚN, HNEYYYYKSLI, skeina sér, Líður illa INNNN Í MÉÉÉR, Smá Bónus og framskein voru hluti af daglegum orðaforða.

-Síðan maður heyrði "hver kenndi þroskaheftum að reima skóna" ræðuna í 10 skiptið í sögunni (og Kjartan spurði, munið, í síðastu tímanum, "voru það húmanistar") Því fékk sá kennari réttilega nafnið Reimar.

Nú er það e-veginn þannig að maður er orðinn gamall og þarf að haga sér (og skeina sér). Maður hættur að geta sagt rúnk þegar fólk er að bullshita (rúnk er nú orðið "þetta er mjög áhugavert sjónarmið. Ég vil endilega heyra frá þér frekar um þetta við tækifæri ....). Nú getur maður ekki mætt þunnur eða fullur í vinnu (eða haft viskí í skápnum sínum). Maður er orðinn eins og viðskiptafræðingarnir með pýramída maslows í rassgatinu (eða þar um bil). Svona einskonar viðbjóður sem fer í vinnu í jakkafötum, kaupir sér jeppa, hlustar a fm og heldur að helstu heimspekilegar hugsanir allra tíma séu "hver vinnur x-factor?" "hvort kom á undan, hænan eða kjúklingabringa í Bónus?" "er homeblest virkilega jafngott báðu megin?"

Ágætu rottur. Það er einungis til ein lausn á þessu. Í apríl mun ég halda rottupartý. Það verður einungis rætt um sálfræði. Álfurinn verður á staðnum. Skilyrði að við verðum viðbjóðslega full og horfum á Dr. Fífl myndbandið. Allar rottur mæta.

Dagskrá:
1) Fordrykkur: Volgur Tuborg úr Animu Skápnum
2) Skemmtiatriði: Heiða María tekur atriðið "ég hef ekki lært neitt" fyrir utan prófstofu í lokaprófi. Vaka tekur "Catonic" dans með póstmódernísku ívafi.
3) Aðalréttur: Jumbó Samloka, með klesstum majones viðbjóði í miðjunni úr Kaffistofu odda eða "Stóri Snæðingur" með kjötfarsi, ónýtu káli og ókrydduðum frönskum úr BSÍ.
4) Skemmtiatriði: Jörgen Pind tekur lagið: "Sá-Sá-Sá-Sáli" (kjallara rem-ix með miðlægum loknefhljóðum, uþb 1500h)
5) Skemmtiatriði: "Villtu sjá outputið mitt?" Valin leikþáttur úr "Marktekt, hözzlaðferðir fyrir fyrsta árs nema".
6) Eftirréttur: Fyrrnefnd samloka hituð upp í örbylgjuofninum sem var "efni til frekari rannsókna: 9,5" í mannfræði.
7) Skemmtiatriði: Amma kvartar undan látum um 10:30.

Eigum við ekki að kýla á þetta?

6 ummæli:

Heiða María sagði...

Þetta er FRÁBÆR hugmynd! Styð hana eindregið. Ertu með einhverjar hugmyndir um nánari dagsetningu?

Toodles, ætla að fara að lesa "Örbylgjuofninn, þarfasti þjónninn" mér til skemmtunar.

Heiða María

Nafnlaus sagði...

Hver er þessi Andri Fannar ?

Nafnlaus sagði...

æji e-r feitur viðbjóður.

Nafnlaus sagði...

Víííí.
Ég mæti brjóstahaldaralaus :)
Ég er til hvenær sem er :) Hvernig er stuðið næstu helgi??
Sigga

baldur sagði...

Ég er til. Það væri samt leiðinlegt að missa af þessu vegna þess að maður vissi ekki að þetta ætti að vera í kvöld (eða hvenær sem þú ætlar að hafa þetta).

Lilja sagði...

Ég styð alla vitleysu sem tengjast rottunum, enda er löngu kominn tími til þess að rifja upp einkahúmorinn. Fólk er virkilega byrjað að hlæja að bröndurunum mínum í vinnunni, svo ég VERÐ að gera eitthvað sem sveipar mig dularfullum blæ.